Um Nokia-verslunina
Veldu >
Verslun
og skráðu þig inn með Nokia-áskriftinni.
Vissir þú að þú getur sett upp fleiri forrit í símanum? Eða hlaðið niður leikjum, líka
gjaldfrjálst? Skoðaðu þig um í Nokia-versluninni og finndu nýjasta efnið sem er
sérhannað fyrir símann þinn.
Þú getur hlaðið niður:
•
Leikjum
•
Forrit
•
Myndskeiðum
•
Þemum og veggfóðri
•
Hringitónum
Þú getur einnig fengið efni sem fellur að þínum smekk og staðsetningu þinni.
Til að hlaða niður úr Nokia-versluninni þarftu að vera með Nokia-áskrift.
Þegar þú skráir þig inn er þér boðið efni sem er samhæft við símann þinn.
Þú getur leitað að og hlaðið niður efni beint í símann þinn eða skoðað Nokia-verslunina
í samhæfri tölvu og sent tengla með efni í símann í textaskilaboðum.
Sumir hlutir kosta ekki neitt; aðra þarftu að kaupa og greiða fyrir með kreditkorti eða
láta skuldfæra á símareikninginn þinn.
Það fer eftir dvalarlandinu og þjónustuveitunni hvaða greiðslumáta boðið er upp á.
Nánari upplýsingar um Nokia-verslunina má finna á www.nokia.com/support.